Föstudagskvöldið 24. febrúar bjóða Attac, Gagnauga og Hreyfingarin í bíó á heimildamyndina Capitalism is the Crisis. Myndin verður sýnd í Grasrótarmiðstöðinni, Borgartúni 4, og hefst sýning hennar kl. 20:00.
Myndin fjallar um kreppur af völdum kapítalismans og mótmælahreyfingar sem verða til í kjölfar þeirra. Í myndinni eru lagðar til byltingarkenndar leiðir fyrir framtíðina. Sjá meira um myndina hér.
Allir eru velkomnir. Sjá viðburð á Facebook.

Laugardaginn 18. febrúar síðastliðinn boðaði Íslandsdeild Attac-samtakanna til samstöðu með Grikkjum niður í Grasrótarmiðstöð þar sem þessi mynd var tekin. Andres Zoran Ivanovic tók myndina.
Gleðilegt ár og verið velkomin á nýjan vef Grasrótarmiðstöðvarinnar, Brautarholti 4 (sjá staðsetningu á korti).
Hér munu á næstunni birtast nánari upplýsingar og fréttir af starfseminni. Gamli bókunarvefurinn verður aðgengilegur gegnum tengil í aðalvalmynd fyrst um sinn á meðan við skiptum yfir í nýja vefkerfið.
Útlit er fyrir að á næstunni verði hægt að hafa miðstöðina meira opna að deginum til en hingað til hefur verið mögulegt. Við fögnum því að sjálfsögðu og hvetjum ykkur að fylgjast vel með bæði hér á vefnum og halda áfram að vera dugleg að mæta, jákvæð þjóðfélagsmótun gerist sjaldan í sófanum heima.